Viðbragðsáætlun almannavarna fyrir Stóru-Vogaskóla er komin út. Hún segir til um skipulag og stjórn aðgerða ef til heimsútbreiðslu inflúensu kemur.
Markmið viðbragðsáætlana er að tryggja skipulögð og samræmd vinnubrögð.
Við gerð áætlunarinnar er meðal annars stuðst við lög um almannavarnir nr.82/2008 og lög um sóttvarnir nr. 19/1997.
Viðbragðsáætlanir skóla hafa samræmda uppbyggingu. Kaflar 2, 3, 4 og 7 eru sameiginlegir og geyma almennar upplýsingar frá  menntamálaráðuneyti, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti sóttvarnalæknis. Aðra kafla semja skólarnir sjálfir og mynda þeir hina eiginlegu viðbragðsáætlun hvers skóla.
Ábyrgð á þessari áætlun er í höndum skólastjóra Stóru-Vogaskóla. Viðbragðsáætlun skal endurskoða á fimm ára fresti en yfirfara árlega. Áætlunin er aðgengileg á heimasíðu skólans, undir tenglinum skólinn hér til hliðar, á skrifstofu skólans, hjá skólastjóra og aðstoðarskólastjóra.
Sjá áætlun
« september 2010 »
M Þ M F F L S
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30