Foreldrarölt skólaárið 2008 - 2009
Kæra foreldri/forráðamaður barns í 5.—10.bekk Stóru-Vogaskóla.
Foreldraröltið er framlag okkar foreldra í að gera samfélagið okkar betra og öruggara fyrir börnin okkar. Foreldraröltið felst í því að foreldrar/forráðamenn barna í 5.—10.bekk frá ca fjórum heimilum, hittast á föstudagskvöldum eða laugardagskvöldum kl. 22:00 í Borunni við íþróttarhúsið (Sjá meðfylgjandi lista) og fara síðan saman á röltið um bæinn okkar.
Markmiðið með foreldrarölti er að varna því að unglingar lendi í vanda sem þeir ekki ráða við og koma í veg fyrir óæskilegar hópamyndanir eftir löglegan útivistartíma. Nærvera fullorðinna þar sem unglingar hafa safnast saman hefur róandi og fyrirbyggjandi áhrif.
Með þessu minnkum við líkurnar á að unglingarnir lendi í aðstæðum sem ógna þeim eða hræða. Slík nærvera gefur unglingunum líka tækifæri til að leita aðstoðar fullorðinna ef á þarf að halda.
Í viðhengi er að finna lista yfir þátttakendur á foreldrarölti skólaárið 2007—2008 þar sem foreldrum hefur verið raðað af handahófi eftir dagsetningum. Listinn hefur einnig verið sendur heim með börnunum í töskupósti.
Búist er við að a.m.k. annað foreldri/forráðamaður hvers nemenda taki þátt en að sjálfsögðu eru báðir velkomnir. Ef dagsetningin hentar ekki, þá er mjög mikilvægt að foreldrar hafi samband sín á milli og skipti innbyrðis og fái þannig annan fyrir sig. Listinn verður ekki birtur á heimasíðu skólans þetta árið vegna persónuverndarsjónarmiða.
Athugið að félagsmiðstöðin er lokuð föstudagana 17. og 24. október. Stjórnin telur samt ástæðu til að halda foreldraröltinu þá daga. Hins vegar er frí um jól og páska.
Um leið og við viljum þakka þeim sem tóku þátt í foreldraröltinu með okkur á síðasta skólaári, viljum við hvetja alla foreldra til að taka þátt og hjálpa til við að byggja upp öflugt og jákvætt forvarnarstarf börnum okkar til heilla. Endilega athugið á listanum hvenær þið eruð skráð á röltið og gerið ráðstafanir innbyrðis um skiptingu ef tímasetning hentar illa.
Foreldraröltið á svæðinu hefur margsannað sig.. Á aðalfundi foreldrafélagsins s.l. september skýrði Tinna Hallgrímsdóttir tómstundaleiðbeinandi frá því að hún hafi tekið eftir að dregið hafi verulega úr óæskilegri hópamyndun unglinga eftir löglegan útivistartíma frá því að byrjað var með foreldraröltið nú fyrir 2 árum. Nú eru nágrannasveitafélögin farin að taka okkur til fyrirmyndar og ætla að hefja röltið líka.
Verum áfram til fyrirmyndar, bæði fyrir börnin okkar og aðra í kringum okkur.
Á ég að gæta bróður míns? Margir foreldrar hugsa sem svo: Barnið mitt er ekki úti á kvöldin. Ég sé um minn ungling og af hverju ætti ég að vera að eyða tíma mínum í að passa annarra manna börn?
Við þessu er einfalt svar: Með því hefur þú áhrif á það félagslega umhverfi sem þú og barnið þitt býr við.
Við berum öll ábyrgð á okkar nánasta umhverfi. Sýnum ábyrgð, verum með.
Með bestu kveðju
Fyrir hönd stjórnar Foreldrafélags Stóru-Vogaskóla:
Jóngeir H Hlinason formaður5652141 / 8942630 jongeir@centrum.is
Valgerður Ágústsdóttir varaformaður 5676706 / 6967284 vala_agustsdottir@live.com
og fyrir hönd Félagsmiðstöðvarinnar Borunnar:
Tinna Hallgrímsdóttir tómstundaleiðbeinandi 440 6224 tinna@vogar.is



