Agastjórnun
SOS
Veturinn 2002-2003 fór starfsfólk Stóru-Vogaskóla á námskeið um aga og uppeldi sem haldið var af Gylfa Jóni Gylfasyni, sálfræðingi. Þar var lögð áhersla á uppbyggilegan aga í skólanum, að hrósa börnunum, sýna vinsemd og virðingu en jafnframt leggja ríka áherslu á þann regluramma sem börnin búa við í skólanum. Aðferðin gekk út á að gefa nemendum stutt, en skýr skilaboð og að við óæskilegri hegðun væru ákveðnar refsingar sem þó fólu ekki í sér niðrandi athugasemdir eða reiðilestra.
Var starfsfólki kennd aðferð sem kölluð hefur verið "time out" á ensku og snýst um að taka nemandann úr þeim aðstæðum þar sem hann hefur farið yfir þau mörk sem skólinn setur. Nemandi er þá látinn á ákveðinn stól í stofunni eða á annan stað undir eftirliti og situr þar í ákveðin tíma, þegar sá tími er liðinn (3-6 mínútur) hringir klukkan og þá er nemandunum frjálst að fara í sætið sitt. Því fylgir enginn reiðilstur né annað að hálfu kennara því litið er á að nú hafi nemandinn fengið tækifæri til að íhuga stöðu sína.
Þessi aðferð hefur verið notuð á yngsta stigi og gefið í flestum tilvikum vel ekki sýst sá hluti aðferðarinnar sem felst í því að líta jákvætt á en nemdurnar og hrósa þeim sem mest.
Reglan er 4 hrós - 1 tiltal.



