Skólareglur

Stóru-Vogaskóla


Við nemendur í Stóru-Vogaskóla viljum taka þátt í að skapa öruggt og notalegt námsumhverfi í skólanum, við berum virðingu fyrir sjálfum okkur og öðrum, berum ábyrgð á gjörðum okkar og erum tilbúin að bæta fyrir þau mistök sem við gerum.

Við mætum stundvíslega í skólann og komum með þau námsgögn sem til þarf.
Ef við komum of seint komum við hljóðlega inn og biðjumst afsökunar. Ef okkur vantar námsgögn megum við búast við að vera send heim eftir þeim.

Við sýnum öðrum kurteisi, virðingu og tillitssemi og hlýðum öllu starfsfólki skólans.
Við biðjumst afsökunar ef við brjótum þessa reglu.

Við líðum ekki ofbeldi, einelti, hrekki eða slagsmál í skólanum og látum vita ef okkur sjálfum eða öðrum líður illa.
Brot á þessu getur varðað  brottrekstri úr skóla.

Við göngum vel um bæði úti og inni og forðumst hlaup og hávaða innan dyra.
Við bætum það tjón sem við völdum á eigum annarra.

Við förum ekki út af skólalóðinni í frímínútum. Áður en við komum inn í kennslustund förum við í raðir. Við gætum þess að fara úr öllum útifötum.
Ef nemandi brýtur ítrekað gegn þessu getur hann átt von á að verða vísað úr kennslustund.

Við notum ekki reiðhjól, línuskauta eða hjólabretti á skólalóðinni eða leikum okkur með annað sem getur skaðað aðra. Við köstum ekki snjó nema á ákveðnum svæðum á skólalóðinni.
Ef við brjótum þessa reglu megum við búast við að hjólin okkar/leiktækin séu gerð upptæk og afhent foreldrum.

Við gætum við þess að neyta hollrar fæðu í skólanum. Sælgæti, gosdrykkir og tyggigúmmí leyfast ekki.
Sælgæti, gosdrykkir og tyggigúmmí verður gert upptækt.

Við reykjum ekki né notum aðra vímugjafa, hvorki á skólalóð né á viðburðum á vegum skólans.
Ef vart verður við slíkt er nemanda vísað til skólastjóra þar til foreldri sækir hann.

Við notum ekki farsíma, tölvuleiki eða hljómtæki í kennslustund.
Ef vart verður við slík tæki í tímum verða þau gerð upptæk og höfð í vörslu skólans þar til foreldri/forráðamaður sækir þau.


Skólareglurnar byggja á reglugerð nr. 270/2000 um skólareglur í grunnskóla

« febrúar 2012 »
M Þ M F F L S
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29