Bókasafnið
Í vetur, eins og áður, mun starfsmaður bókasafnsins verða nemendum til aðstoðar á safni. Sérstakir tímar eru á stundaskrám nemenda til fræðslu og vinnu á bókasafni. Nemendum gefst áfram kostur á að fá bækur lánaðar frá þeim hluta safnsins sem tilheyrir skólanum. Bókasafnskostur skólasafnsins er rúmlega 2000 bindi: fræðibækur, handbækur, skáldrit o.fl. Foreldrar eru beðnir um að fylgjast með því að bækur lendi ekki í vanskilum.
Er ekki örugglega hægt að ná í þig?
Það er sérstaklega þegar eitthvað bjátar á; slys verða á börnum, þau veikjast,brjóta illa af sér eða stinga af úr skóla, að nauðsynlegt getur verið að ná strax sambandi við foreldra.
Algengast er að báðir foreldrar séu útivinnandi. Mjög mikilvægt er að gefinn sé upp vinnusími eða GSM-sími. Því miður er það of algengt að ekki náist í foreldra þegar á þarf að halda. Oft er það vegna þess að símanúmer eru orðin úrelt - þetta á sérstaklega við um GSM númerin. Einnig vantar okkur stundum vinnusíma foreldra,
Við biðjum foreldra að hafa allan vara á hvað þetta snertir og koma réttum símanúmerum til okkar.
Meðferð og skil skólabóka
Skólanum er árlega úthlutað kvóta til kaupa á skólabókum og gildir hann almanaksárið. Þessi kvóti dugar þó hvergi nærri til þess að hver nemandi geti fengið allar sínar bækur ónotaðar enda ekki til þess ætlast. Það er því ástæða til að ítreka við nemendur að þeir fari vel með þær bækur sem skólinn lánar þeim og reyndar með allar bækur og námsgögn. Það er einnig mikilvægt að öllum bókum, öðrum en vinnubókum, sé skilað að vori því þær þarf að endurnýta fyrir aðra bekki.
Glati nemandi bók eða eyðileggi þarf hann sjálfur að greiða fyrir nýtt eintak.



