Þróunarstarf í Stóru-Vogaskóla

Það er mikilvægur hluti í starfi hvers skóla að fylgjast með og taka upp nýja kennsluhætti sem stuðlað geta að bættu skólastarfi. Í Stóru-Vogaskóla hefur þetta verið gert á undanförnum árum með ýmsum hætti og má þá m.a. nefna skipulagt þemanám á yngsta stigi, einstaklingsmiðað námsferli, Regnbogaverkefni og með samstarfsverkefni í Comeniusaráætlun Evrópusambandsins. Nýjasta verkefnið er Primalinguea en það er sömuleiðis verkefni á vegum Evrópusambandsins þar sem skólar um gjörvalla Evrópu eru að vinna samskonar verkefni og hafa samband milli sín með þeirri fjölbreyttu samskiptatækni sem nútíma tölvutækni býður uppá.

« september 2010 »
M Þ M F F L S
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30