Einstaklingsmiðað nám
Þróunarverkefni í átt til fjölbreyttra kennsluhátta í Stóru-Vogaskóla
Árið 2005 hófst þróunarverkefni í Stóru-Vogaskóla sem hefur það að markmiði að auka fjölbreytni í kennsluháttum í skólanum auk þess sem lögð er meiri áhersla á persónulega nálgun nemenda á viðfangsefnið í anda hugmyndarinnar um einstaklingsmiðað nám.
Upphaf verkefnisins var námskeið fyrir stjórnendur í hugmyndafræðinni veturinn 2004-2005 og miðaðist að því að gera stjórnendur skóla hæfa til að leiða breytingar á kennlsuháttum í skólanum að marki einstaklingsmiðunar.
Breyting á kennsluháttum verður aldrei tekin í einu skrefi og því var mótuð áætlun þar sem áherslan var lögð á hæga en öruggar breytingar. Fyrsta skrefið í breytingunum var tekið að hausti 2005. Þá var lagt af stað með umfangsmikið þemanám á yngsta stigi þar sem list og verkgreinar ásamt nokkrum bóklegum greinum voru samþættar eftir efnisþáttum í 12 viðfangsefni sem kennd eru á tveggja ára fresti. Þannig á sér stað einskonar samkennsla þar sem 1.-2. bekkur vinna að sömu viðfangsefnum og 3.-4. að þeim sömu. Sama ár var íslensku og stærðfræðikennslu á miðstigi breytt þannig að nemendum var raðað í hópa eftir verkfærni þannig að námsefni og nálgun hópanna kæmi sem best til móts við hæfni nemendanna til að nema.
Hugmyndirnar um einstaklingsmiðað nám og fjölbreytta kennsluhætti má líta á sem tvær ólíkar nálganir að sama markmiði. Einstaklingsmiðunin felur í sér að horft er til nemandans og þess sem hann ber með sér inn í kennslustofuna en fjölbreyttir kennsluhættir snúa að þeim verkfærum sem kennarinn hefur til að bregðast við þörfum nemandans. Verkfæri kennarans eru fyrst og fremst þær kennsluaðferðir sem hann hefur hefur tök á og því miðast þróunarverkfnið jafnframt að því að auka þessi verkfæri kennarans og gara hann þannig hæfari til að skila árangursríkri kennslu.
Ítarefni.
Einstaklingmiðað nám
Hvað er einstaklingsmiðun - hvað er hún ekki. Þýðing úr bók Carol Ann Thomlinson
Vefur Ingvars Sigurgeirssonar um Einstaklingsmiðað nám
Fyrirlestur fyrir kennara um einstaklingsmiðað nám mars 2006.
Kennsluaðferðir
Góður vefur um fjölbreytta kennsluhætti í Melaskóla
Vefur Ingvars Sigurgeirssonar um fjölbreytta kennsluhætti
Hugleiðingar kennara í Stykkilshólmi um mikilvægi fjölbreytnin í skólastarfi.



