Samstarf Stóru-Vogaskóla við
Fjölbrautaskóla Suðurnesja


Samstarf Stóru-Vogaskóla og Fjölbrautaskóla Suðurnesja FS á sér áralanga hefð.
Samstarfið fellst í því að á hverju hausti kemur námsráðgjafi FS í heimsókn til okkar og kynnir fyrir nemendum 10. bekkjar, og nú hin síðari ár einnig nemendum 9. bekkjar, skipulag námskerfis í FS. Í framhaldi er síðan ákveðinn dagur, þar sem nemendur okkar fara í heimsókn í FS. Þar taka á móti þeim námsráðgjafar og fulltrúar nemendafélags FS og kynna og sýna þeim húsnæðið og þá starfsemi sem þar fer fram. 


FS hefur boðið nemendum grunnskólanna á Suðurnesjum að taka áfanga í völdum greinum s.s. stærðfræði, ensku, þýsku, íslensku og fl.


FS hefur staðið fyrir stærðfræðikeppni grunnskólanna á Suðurnesjum í mörg ár þar sem nemendur í 8.-10. bekk spreyta sig á ýmsum stærðfræðiverkefnum sem eru ólík þeim sem þau eru að fást við í grunnskólanum.


Þetta samstarf er mjög mikilvægt nemendum okkar þar sem FS er okkar heimaskóli.


Heimasíða FSS

« febrúar 2012 »
M Þ M F F L S
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29