Á döfinni

24.1.2012 13:41:57

Höfðingleg gjöf frá Lionsklúbbnum Keili-Góð byrjun á degi

 

 
Föstudaginn 13.janúar var söngsamvera í Tjarnarsal.  Þorvaldur tók saman nokkur Þorralög og önnur skemmtileg lög.
Við buðum nýja bæjarstjóranum okkar, Ásgeiri Eiríkssyni, á samveruna. Nemendur sýndu sína bestu hlið og voru sjálfum sér til sóma. Enda hafði hann á orði að þetta væri góð byrjun á deginum.
Jóhanna Lára Guðjónsdóttir formaður Lionsklúbbsins Keilis, heiðraði okkur einnig með komu sinni. Hún kom færandi hendi því klúbburinn gaf skólanum I-pad tölvu til notkunar fyrir nemendur sem hjálpar þeim sérstaklega í þeirra námi.
Við þökkum Lionsklúbbnum Keili kærlega fyrir þessa góðu gjöf sem á eftir að koma sér mjög vel.

--

Til baka

« febrúar 2012 »
M Þ M F F L S
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29