Á döfinni

21.9.2011 14:44:03

Örnámskeið fyrir foreldra

Í átt að aukinni hollustu – börnunum komið á bragðið
Örnámskeið fyrir foreldra
Miðvikudaginn 21. september kl. 20-22
í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð stofu H-207 (Gengið inn Háteigsvegsmegin)


Á námskeiðinu fjallar Anna Sigríður Ólafsdóttir, dósent í næringarfræði við Menntavísindasvið, um matarvenjur, matvendni og næringarþörf  barna. Hún ráðleggur um heilsusamlegt fæðuval fyrir fjölskyldur og spannar allan aldur barna, þ.e. með áherslu á þroskaferlið og matarsmekkinn á mismunandi aldursskeiðum og hvernig má reyna að uppfylla þarfir og væntingar allra fjölskyldumeðlima á skemmtilegan hátt.
 
Námskeiðið er það þriðja af fjórum örnámskeiðum sem Menntavísindasvið býður upp á á miðvikudagskvöldum í september, en sviðið fagnar aldarafmæli Háskóla Íslands með veglegri dagskrá og viðburðum í mánuðinum.
 
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.

Til baka

« maí 2012 »
M Þ M F F L S
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31