7. júní 2021

Vordagur

(Skertur dagur, kl. 9:00-12:00)

1.-4. bekkur

Nemendur vinna að landgræðsluverkefni, dreifa áburði, sá grasfræi og leika sér í móanum. Nemendur eiga að vera klæddir eftir veðri og hafa vettlinga fyrir sáninguna. Gott er að taka með sér litla fötu að heiman undir fræin. Umsjónakennarar ákveða hvort það megi hjóla og þá að sjálfsögðu með hjálminn, ef nemendur mæta hjálmlausir þurfa þeir að ganga. Grillað í Aragerði í lokin.

Frístund tekur við kl. 12:00

5.-7. bekkur

Nemendur vinna að landgræðsluverkefni og gróðursetja tré við Háabjalla. Nemendur eiga að vera klæddir eftir veðri. Gott að mæta á hjóli og að sjálfsögðu með hjálminn, ef nemendur mæta hjálmlausir þurfa þeir að ganga. Grillað á Háabjalla í lokin.

8.-9. bekkur

Golfgleði á Kálfatjarnarvelli. Pylsur í golfskála.

  1. bekkur

Leikið í skóla með Ernu og Ingibjörgu.

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Mentor
  • Twinning School