23. apríl 2019

Barnamenningarhátíð í Reykjavík

Fjórir nemendur úr Stóru-Vogaskóla tóku þátt í Barnamenningarhátiðinni í Reykjavík í fyrsta skiptið þann 12. apríl.

Hátíðin var haldin hátíðleg í Reykjavík frá 9.-14.apríl 2019

Það var mikið um að vera þessu daga fyrir fjölskyldur og krakka í Reykjavík.

Arnbjörg, Aníta Mjöll, Jenetta Líf og Hilda Rögn, nemendur úr 6. og 7.bekk fluttu frumsamin lög - “Sad” og “ Ég er svangur” sem þær unnu undir handleiðslu kennara síns Alexöndru Chernyshovu.

Í vetur var nemendum Stóru-Vogaskóla gefin kostur á að vera í Bílskúrsbandi og skólakór og taka þátt í Upptaktinum - tónsmiðakeppni fyrir krakka.

Afreksturinn var sýndur með góðum undirtektum á Barnamenningarhátiðinni. Fullt var í Gerðurbergi  - Menningarhúsi í Reykjavík, mikil stemning og gleði.

Gaman að segja frá því að krakkarnir fengu sérstaklega hrós frá stjórnenda Barnamenningarhátiðarinnar Hörpu Rut Hilmarsdóttur. 

 Vel gert !

Jenetta Líf, Hilda Rögn, Aníta Mjöll, Harpa Rut - verkefnastjóri Barnamenningarhátíðarinnar og Arnbjörg.

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Grænfáninn
  • Mentor
  • Twinning School