Office 365

Microsoft Office 365 er útgáfa af Microsoft Office byggð á skýjalausnum. Í Office 365 hafa notendur aðgang að nýjustu útgáfum Office án þess að vera bundnir við tiltekna tölvu eða snjalltæki. Hægt er að nálgast gögn hvar og hvenær sem er. Allir nemendur í 8.-10. bekk í Stóru-Vogaskóla hafa aðgang að Office365 og geta nýtt sér ,,skýið“ (OneDrive) til að geyma, deila og vinna í gögnum sínum á netinu. Nemendum gefst líka kostur á að vinna sameiginleg verkefni og séð uppfærslur hjá hver öðrum á rauntíma. Við hvetjum nemendur til að geyma skólaverkefni sín á skýinu því þar eiga nemendur nánast ótakmarkað gagnamagn.

Smelltu hérna til að komast inn á Office 365.

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Mentor
  • Twinning School