28. febrúar 2023

Bekkjarkeppni - Stóra upplestrarkeppnin

Bekkjarkeppni - Stóra upplestrarkeppnin

Bekkjarkeppni Stóru upplestrarkeppninnar í 7.b.

Þann 28. febrúar fór bekkjarkeppni Stóru upplestrarkeppninnar fram í Stóru-Vogaskóla. Eftir frábæran lestur nemenda á sögunni Kennarinn hvarf eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og völdum ljóðum eftir Kristján frá Djúpalæk, settust dómarar keppninnar yfir það vandasama hlutverk að velja þá þrjá sem munu keppa fyrir hönd skólans á lokahátíð keppninnar í apríl. þau sem voru valin til þátttöku í lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar voru Emelía Ósk Ragnarsdóttir, Ragnar Ingi Pétursson og Lilja Bára Kristinsdóttir. Óskum við þeim til hamingju með árangurinn.

Í lokakeppninni, sem fram fer í Gerðarskóla þann 15. mars, munu þau etja kappi við nemendur er báru sigur úr bítum úr Gerðaskóla, Grunnskóla Grindavíkur og Sandgerðisskóla.

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Mentor
  • Twinning School