Bekkjarkeppni Stóru upplestrarkeppninnar í 7.b.
Þann 20. febrúar fór bekkjarkeppni Stóru upplestrarkeppninnar fram í Stóru-Vogaskóla. Eftir frábæran lestur nemenda á sögunni Hetja eftir Björk Jakobsdóttur og völdum ljóðum eftir m.a. Braga Valdimar Skúlason, settust dómarar keppninnar yfir það vandasama hlutverk að velja þá þrjá sem munu keppa fyrir hönd skólans á lokahátíð keppninnar. Þau sem voru valin til þátttöku í lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar voru Gabríela Ósk Sequeira Gomes, Ingunn María Einarsdóttir og María Ásmundsdóttir. Óskum við þeim til hamingju með árangurinn.
Í lokakeppninni, sem fram fer í Gerðaskóla í Garði þann 10. mars, munu þau etja kappi við nemendur er báru sigur úr bítum úr Gerðaskóla og Sandgerðisskóla.









