18. september 2009

Björgunarsveitin í heimsókn

Menn frá Björgunarsveitinni Skyggni komu í heimsókn í skólann s.l. miðvikudag og kynntu starfsemi sveitarinnar fyrir nemendum í 9. og 10. bekk. Nemendurnir sýndu efninu mikinn áhuga eins og sést á eftirfarandi tilkynningu sem skólanum barst frá sveitinni:

l

Miðvikudaginn 17. september var heldur betur mikið um að vera í húsakynnum Björgunarsveitarinnar Skyggnis í Vogunum en þangað voru komnir 30 krakkar frá 14 ára aldri og uppúr til þess að endurvekja unglingadeildina Tígul. Unglingadeildin hefur legið í dvala um töluvert skeið en nú hefur hún verið vakin upp af miklum krafti. Á fundinum var farið yfir það helsta sem verður gert i vetur og auk þess var farið yfir það hvernig unglingastarf innan björgunarsveita virkar, en slíkt starf hefur verið starfrækt hjá björgunarsveitum á svæðinu í kring í fjölda ára og við góðan orðstír. Á næstu mánuðum verður unnið að því að koma fótum undir starf deildarinnar og verða þess vegna 4 til 5 fundir í mánuði fyrir utan ferðalög og aðrar stærri uppákomur. Viljum við í björgunarsveitinni Skyggni og unglingadeildinni Tígli þakka fyrir frábært kvöld og hlökkum við til að sjá sem flesta í næstu viku.
 
  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Grænfáninn
  • Mentor
  • Twinning School