4. mars 2016

Bragi Hilmarson, 8 ára, gefur út sína fyrstu bók

Mikill áhugi er á sögugerð í tölvu í 3. bekk.

Bragi hefur náð góðum tökum á bæði sögugerð og fingrasetningu og er því fljótur að koma hugmyndum sínum frá sér í tölvunni. Þessi gífurlegi áhugi ásamt færni til að skrifa hefur skilað honum fullunnu verki í formi bókar. Hann tók uppsetningu bóka sér til fyrirmyndar og skoðaði meðal annars innan á þær þar sem finna má upplýsingar um útgáfuár, útgefanda og aðrar mikilvægar upplýsingar eins og hvort afrita megi bókina eða ekki.

Bókin heitir Ömurleg helgi hjá Pétri og hana má eigi afrita nema með skriflegu leyfi höfundar.

Kennari Braga er að lesa bókina fyrir bekkinn hans og ríkir mikil gleði í hópnum sem greinilega getur samsamað sig hugmyndunum sem þar er að finna.

Hægt er að fá bókina til útláns á skólabókasafninu.

Teikningar í bókinni eru einnig eftir Braga.

Við óskum Braga til hamingju með sína fyrstu bókaútgáfu.

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Grænfáninn
  • Mentor
  • Twinning School