17. nóvember 2011

Dagur Íslenskrar tungu 16. nóvember

 
Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur í skólanum í dag. Nemendur í 5.-10. bekk fengu rithöfundinn Kolbrúnu Aðalsteinsdóttur í heimsókn. Hún las fyrir þá valda kafla úr bók sinni Röskvu sem er kom út nýlega. Nemendur sýndu bókinni mikinn áhuga og gaf höfundur sér tíma til að ræða og svara spurningum um bókina og persónur hennar.
 
Eftir upplesturinn var haldin spurningakeppni innan skólans. Nemendum unglingadeildar var skipt í þriggja manna lið og keppti eitt lið fyrir hönd hvers bekkjar. Mikil spenna var í keppninni og tilþrifin stórkostleg, sérstaklega í bjölluspurningunum og leiklistar hluta keppninnar. Keppnin var nokkuð jöfn en að lokum fór 10.bekkurinn með sigur af hólmi.
 
Þá var nemendum á yngsta stigi boðið að hlusta á sögu sem þrír nemendur í 8.bekk lásu fyrir þau. Ekki var að sjá annað en að þeim þótti sagan skemmtileg. Að upplestri loknum veitti Inga Rut Hlöðversdóttir nemendum verðlaun fyrir þátttöku í ljóðasamkeppni Lions. Eftirtaldir nemendur fengu viðurkenningu fyrir ljóð sín: Kaleb Þórsson, Hildur Björg Sigurjónsdóttir, Arnar Egill Hilmarsson, Gunnlaugur Atli Kristinsson, María Líf Piano, Daníel Örn Sveinsson, Aron Snær Arnarsson, Hafrún Freyja Hrafnkelsdóttir, Hekla Sól Víðisdóttir, Fanney Björg Magnúsdóttir, Jón Gestur Ben, Rut Sigurðardóttir og Írena Vigdís Guðmundsdóttir.  Ljóðin verða birt á dagatali sem Lions gefur út á næstunni en það mun einnig prýða myndir eftir myndlistarmenn/konur sem búsett eru í sveitarfélaginu.
 
 
 
 
 
 
Spurningakeppni Grunnskólanna
Í næstu viku fer fram svæðakeppni í Spurningakeppni grunnskólanna. Keppnin er mjög lík Gettu betur keppninni sem margir kannast við. Nemendur munu spreyta sig á hraðaspurningum, bjölluspurningum, þríþraut og vísbendingaspurningum. Undanfarin ár hefur keppnin eingöngu farið fram í Reykjavík og nágrenni en í ár verður hún á landsvísu. Eitt lið mun keppa fyrir hönd Stóru-Vogaskóla og mun það keppa við grunnskóla á Reykjanesinu. Lið skólans er skipað Önnu Kristínu Baldursdóttur, Sveini Ólafi Lúðvíkssyni og Kolbrúnu Fríðu Hrafnkelsdóttur, en þau voru stigahæst í spurningagetraun sem lögð var fyrir alla nemendur á unglingastigi í vikunni. Sá skóli sem verður efstur í svæðakeppninni fer áfram í átt liða úrslit. Úrslitaviðureign keppninnar verður á milli tveggja stigahæstu skólanna á landinu og verðu henni útvarpað á Rás 2 þegar nær dregur.
Mikill hugur er í liðinu og er það strax farið að undirbúa sig. Við óskum þeim góðs gengis við undirbúning keppninnar.
  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Grænfáninn
  • Mentor
  • Twinning School