18. nóvember 2026

Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur

Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur í Stóru-Vogaskóla í tilefni af fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar (1807-1845) þann 16. nóvember.

Nemendur og starfsfólk kom saman í Tjarnarsal þar sem skólastjórinn ávarpaði viðstadda. Fór hann yfir mikilvægi íslenskunnar og læsi almennt. Að sjálfsögðu var farið yfir æviágrip Jónasar í stuttu máli og nýyrðasmíð hans, sem í dag er samofið íslensku máli eins og gefur að skilja. Af miklum fjölda nýyrða á sínum tíma má nefna AÐDRÁTTARAFL, HITABELTI, SJÓNARHORN, VETRARBRAUT, ELDSUMBROT, BRINGUSUND, FJÖLBREYTTUR, HAGAMÚS, LAMBASTEIK, KENNSLUGREIN, SUNDKENNSLA.

Litla og Stóra upplestrarkeppnin var sett og fór skólastjóri yfir að nú sé formlegur undirbúningur fyrir keppnirnar hafinn.

Matthildur Yrsa Sigurðardóttir las upp úr bók sinni Síðasti dagurinn. Bókina skrifaði hún ásamt verðlaunahöfundinum Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring. Bókin hlaut nýverið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026.  Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók.

Matthildur Yrsa var ellefu ára þegar náttúruhamfarirnar í Grindavík hófust, heimabæ hennar. Matthildur fluttist tímabundið í Vogana og gekk í Stóru-Vogaskóla í nokkra mánuði. Í Stóru-Vogaskóla tók hún þátt í verkefninu „skapandi skrif“ sem varð upphafið að þessari verðlaunabók. Þar segir Matthildur sögu sína og lýsir síðasta deginum í Grindavík. Didda Flygenring teiknari, myndlýsir söguna.

Að lokum leiddu nemendur í 4. bekk sönginn „Á íslensku má alltaf finna svar“ og tóku allir nemendur undir.

Því næst fóru nemendur í sínar stofur og unnu áfram með verkefni tengd „Degi íslenkrar tungu“.

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Grænfáninn
  • UNESCO
  • Hnetulaus skóli
  • Mentor
  • Twinning School