14. desember 2011

Desembertilbreytingar okkar

Í byrjun desember fóru nemendur frá Námsveri í Heiðmörk og völdu þar stórt og mikið jólatré. Ási skólabílstjóri fór með þeim ásamt Ingibjörgu og Jónu Rut. Þetta jólatré gefur Skógræktarfélag Reykjavíkur okkur en í staðinn báru nemendur í Námsveri út jólabækling, í öll hús í Vogum og á Vatnsleysuströnd, um jólamarkaðinn við Elliðavatn. Dísa ritari hafði síðan umsjón með skreytingu trésins. Það er því risastórt, uppljómað og skreytt tré hjá okkur allan desember.
Við komumst því  í mikið jólastuð og höfum nokkrum sinnum safnast saman á sal til að æfa og syngja jólasöngva.
Þann 8.desember var hinn árlegi föndurdagur, þá fengu nemendur að velja þrjár stöðvar, þau fóru síðan á milli og föndruðu það sem mestan áhugann vakti. Yngri og eldri nemendur, ásamt starfsmönnum og nokkrum foreldrum, föndruðu hlið við hlið og aðstoðuðu  hvert annað. Starfsmenn skólans eru sammála því að þessi dagur hafi verið sérlega vel heppnaður og hann er örugglega kominn til að vera.
Þriðjudaginn 13.desember voru síðan árlegir jólatónleikar Tónlistarskóla Sveitarfélagsins Voga.
Nemendur í 2. og 3.bekk spiluðu nokkur lög sem þau hafa æft í tónmenntatímum hjá Laufeyju.
Þá spiluðu allir níu píanónemendurnir í skólanum, ýmist fjórhent með Laufeyju , ein sér eða tvímennt með öðrum nemendum. Tónleikarnir tókust mjög vel og er með ólíkindum hversu mikilli færni nemendur hafa náð á þeim stutta tíma sem þau hafa æft.
Við munum halda áfram að syngja jólalög saman á sal og eru allir velkomnir sem vilja upplifa jólastemningu með okkur nú á fimmtudaginn, föstudaginn og síðast á mánudaginn, alla dagana kl.8:45. Að öðru leyti er kennsla samkvæmt stundaskrá.
Litlu jólin og síðasti dagur í skólanum fyrir jól er síðan þriðjudaginn 20.desember kl. 10-11:30.
Við munum senda ykkur bréf með nánari upplýsingum fyrir helgi.
Athugið að á myndasíðu skólans má sjá myndir frá öllum þessum viðburðum og miklu fleiri.
  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Grænfáninn
  • Mentor
  • Twinning School