16. desember 2013

Föstudagurinn 20. des

Litlu jól í Stóru-Vogaskóla 2013
          
 

Föstudaginn 20.desember verða Litlu jólin haldin hátíðleg í skólanum. Á Litlu jólunum reynum við að hafa notalega jólastemningu og það er skemmtilegt ef börnin geta komið í betri fötunum sínum. Skemmtunin hefst með stofujólum klukkan 10:00 þar sem hver nemandi mætir til umsjónakennara í sína heimastofu. Börnin mega koma með kerti að heiman og stöðugan kertastjaka. Stofujólin hefjast með því að kveikt er á kertunum, síðan les kennari jólasögu á meðan börnin borða saman. Nemendur mega koma með gos/djús og kökur eða sælgæti. Eftir lestur jólasögunnar er jólakortum dreift ef þau eru til staðar, þau lesin og skoðuð. 

 

Að síðustu er lukkupökkum dreift. 

Þennan dag koma börnin með lítinn jólapakka (innihaldið má ekki kosta meira en 700 kr.). Endilega gætið þess að gjöfin geti verið fyrir stelpu eða strák, sé hlutlaus.

 

Eftir þetta er farið inn á sal, um kl.11, þar sem gengið er í kringum jólatréð og sungin jólalög, hugsanlega koma jólasveinar með eitthvað góðgæti. Litlu jólunum lýkur klukkan 11:30, þá fara öll börnin heim og hefst þar með jólafrí í skóla og Frístund.

 

Athugið að enginn hádegismatur verður þennan dag. Foreldrar og systkini eru velkomin á jólaballið ef þau hafa tök á, yngri systkini verða að koma í fylgd fullorðinna.

Skólinn hefst aftur að loknu jólafríi 7. janúar 2014 samkvæmt stundaskrá.

 

Okkar bestu óskir um gleðileg jól og þakkir fyrir samstarfið á árinu.

 

                                               Starfsfólk Stóru-Vogaskóla

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Grænfáninn
  • Mentor
  • Twinning School