8. september 2011

Gítarnámskeið

Gítarnámskeið
fyrir byrjendur í 3.-6.bekk
og
fyrir lengra komna í 7.-10.bekk
mánudaga og fimmtudaga
 
Langar þig að læra að spila á gítar?
Nú er tækifærið.
Námskeið fyrir byrjendur:
 Á námskeiðinu verða kenndir algengustu hljómar á gítar, hvernig á að stilla hljóðfærið og blús/rokk rytmar.
 
Námskeiðið tekur fjórar vikur, ein klukkustund í senn og verður kennt á mánudögum og fimmtudögum eftir hádegi. Fyrsti tíminn verður 19.september. Nánari tímasetning auglýst síðar. Um hópkennslu er að ræða, 10-15 nemendur í hóp. Námskeiðsgjald er kr. 14.500 kr.
Námskeið fyrir lengra komna:
Kenndir verða allir venjulegir“ hljómar, breyttir hljómar og þvergrip. Farið verður ýtarlega í tóntegundaskipti og hljómaáslátt/plokk.
Námskeiðið tekur átta vikur, ein klukkustund í senn og verður kennslan á mánudögum eftir hádegi, fyrsti tími 19.september. Nánari tímasetning verður auglýst síðar. Um hópkennslu er að ræða, 10-15 nemendur í hóp. Námskeiðsgjald er kr. 14.500 kr.
 
 
Upplýsingar um kennarann:
Hannes Guðrúnarson starfar sem gítarkennari við Tónlistarskóla Kópavogs og sem sjálfstætt starfandi tónlistarmaður.
Hann hefur haldið fjölda námskeiða í gítarleik hjá KFUM og K, ÆSKR og sinnt stundakennslu í KHÍ.
 
Skráning fer fram á skrifstofu skólans í síma 440-6250, einnig er hægt að senda tölvupóst á: ritari@vogar.is
Tónlistarskóli Stóru-Vogaskóla
  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Grænfáninn
  • Mentor
  • Twinning School