Gjaldfrjáls námsgögn
Sú nýbreytni hefur nú verið tekin upp í Stóru-Vogaskóla að nemendur fái öll námsgögn í skólanum. Nemendur þurfa aðeins að eiga skólatösku, íþrótta- og sundföt í íþróttatösku (léttum bakpoka) ásamt nestisboxi. En heimafyrir þurfa allir af hafa aðgang að skriffærum til að nýta við heimavinnu.
Við vonum að þetta fyrirkomulag verði nemendum og fjölskyldum þeirra til hagræðis og fögnum því að geta boðið upp á gjaldfrjáls námsgögn í skólanum.
Nemendur mega mæta með sín gögn og um að gera að endurnýta það sem til er.








