Kökulestur
Krakkarnir í 1. - 4. bekk, hafa síðustu 3 vikurnar verið í lestrarátakinu Kökulestur. Þau unnu sér inn kökumiða með því að lesa aukalega við heimalesturinn a.m.k. 15 sinnum og gátu svo notað miðana til að kaupa sér köku á lokadegi átaksins. Það er gaman að segja frá því að nánast allir nemendur yngsta stigi tóku þátt og flestir unnu sér inn 2 kökumiða. Vel gert!








