13. febrúar 2019

Kraftur - ný bók

FOKK ÉG ER MEÐ KRABBAMEIN – NÝ BÓK


Kraftur hefur endurútgefið bókina LífsKraftur í algjörlega nýrri mynd. Allir sem greinast með krabbamein á aldrinum 18-45 ára og fjölmargir fleiri fá bókina afhenta sér að kostnaðarlausu en hún liggur einnig frammi á öllum spítölum landsins. Einnig er bókin aðgengileg hér á bókasafninu okkar til útleigu

„Bókin kom fyrst út árið 2003 og er þetta er fimmta útgáfan af LífsKrafti en við tókum mið af gömlu bókinni en ákváðum að endurskrifa hana með það í huga að hún höfðaði betur til ungs fólks. Hún er eftir sem áður handbók um flest sem viðkemur krabbameini og þær hugleiðingar sem fólk hefur um krabbamein,” segir Hulda Hjálmarsdóttir framkvæmdastjóri Krafts. „Undirtitill bókarinnar er einmitt Fokk ég er með krabbamein sem er jú oftast það fyrsta sem kemur upp í kollinn á fólki þegar það greinist með krabbamein“, segir Hulda enn fremur.

LífsKraftur inniheldur hagnýtar upplýsingar fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein, aðstandendur þeirra og vini. Tilgangur þessarar útgáfu er að safna saman á einn stað upplýsingum, fræðsluefni og bjargráðum sem koma að gagni fyrir ungt fólk með krabbamein og aðstandendur.
 

Þú getur lesið bókina hér á netinu eða fengið hana senda heim til þín og greiða þá bara sendingarkostnaðinn. Hér er hægt að fá bókina senda heim.

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Grænfáninn
  • Mentor
  • Twinning School