20. október 2023

Lausar stöður

Lausar stöður

Lausar stöður kennara í Stóru-Vogaskóla

 

Stóru-Vogaskóli óskar eftir að ráða kennara í eftirfarandi stöður:

  • Íþrótta- og sundkennari
  • Umsjónarkennari á yngsta stig

 

Stóru-Vogaskóli er 180 barna grunnskóli, í ört stækkandi samfélagi, þar sem skólastarf er í senn metnaðarfullt og faglegt. Einkunnarorð skólans eru virðing, vinátta og velgengni sem endurspeglast í daglegu starfi í skólanum. Í skólanum er góður starfsandi og hefur skólinn á að skipa öflugu og áhugasömu starfsfólki.

 

Skólinn er staðsettur í einstöku umhverfi í nálægð við fjölbreytta náttúru. Stóru-Vogaskóli er Grænfánaskóli.

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu, skal fylgja umsókn
  • Reynslu af kennslu
  • Hæfnispróf sundkennara
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
  • Færni í samvinnu og teymisvinnu
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Áhugi á að starfa með börnum

 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Kennarasambands Íslands.

 

Umsóknarfrestur er til 6. nóvember. Umsóknir skulu berast á netfangið hilmar@vogar.is

 

Nánari upplýsingar veitir Hilmar Egill Sveinbjörnsson skólastjóri í síma 440-6250.

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Mentor
  • Twinning School