11. apríl 2019

Lausar stöður grunnskólakennara í Stóru-Vogaskóla

Lausar stöður grunnskólakennara í Stóru-Vogaskóla

 

 

 

Lausar stöður grunnskólakennara í Stóru-Vogaskóla

 

Stóru-Vogaskóli óskar eftir að ráða grunnskólakennara í eftirfarandi stöður:

·       Umsjónarkennslu

·       Náttúrufræði

·       Heimilisfræði

·       Smíði

·       Textíl

·       Sérkennslu

 

Stóru-Vogaskóli er 170 barna grunnskóli þar sem skólastarf er í senn metnaðarfullt og faglegt. Einkunnarorð skólans eru virðing, vinátta og velgengni sem endurspeglast í daglegu starfi í skólanum. Í skólanum er góður starfsandi og hefur skólinn að skipa öflugu og áhugasömu starfsfólki.

 

Skólinn er staðsettur í einstöku umhverfi í nálægð við fjölbreytta náttúru. Stóru-Vogaskóli er Grænfánaskóli.

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

·       Leyfisbréf sem grunnskólakennari

·       Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður

·       Færni í samvinnu og teymisvinnu

·       Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum

·       Ábyrgð og stundvísi

·       Áhugi á að starfa með börnum

 

Fyrirspurnir og umsóknir skal senda á póstfangið skoli@vogar.is fyrir föstudaginn 27.apríl 2019.

 

Nánari upplýsingar veita Hálfdan Þorsteinsson skólastjóri og Hilmar Egill Sveinbjörnsson aðstoðarskólastjóri í síma 440-6250.

 

 

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Grænfáninn
  • Mentor
  • Twinning School