
Lausar stöður í Stóru-Vogaskóla
Lausar stöður í Stóru-VogaskólaVið í Stóru-Vogaskóla í Vogum við Vatnsleysuströnd leitum að skapandi, faglegum og áhugasömum kennurum og starfsfólki í eftirfarandi stöður fyrir skólaárið 2025-2026: · Umsjónarkennara á öll stig · Verkgreinakennara í smíði · Dönskukennara · Sérkennara Í Stóru-Vogaskóla eru um 220 nemendur í 1.-10. bekk í stækkandi sveitarfélagi. Lögð er áhersla á fjölbreytt, metnaðarfullt og skapandi skólastarf, þar sem sveigjanleiki og gott starfsumhverfi er í forgangi. Einkunnarorð skólans eru virðing, vinátta og velgengni sem endurspeglast í daglegu starfi. Í skólanum er góður starfsandi og hefur skólinn á að skipa öflugu og áhugasömu starfsfólki. Skólinn er staðsettur í einstöku umhverfi í nálægð við fjölbreytta náttúru. Stóru-Vogaskóli er Grænfána, UNESCO og Erasmus+ skóli. Menntunar- og hæfniskröfur: · Leyfisbréf til kennslu · Önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi · Þekking og reynsla á teymiskennslu æskileg · Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum · Góð tölvukunnátta, góð þekking á Mentor, upplýsingatækni og notkun rafrænna miðla í kennslu og starfi · Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma · Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður · Ábyrgð og stundvísi · Áhugi á að starfa með börnum Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð sbr. 11. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008. Umsóknum skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil, afrit af leyfisbréfi og kynningarbréf. Umsóknarfrestur er til og með 21. apríl. Umsóknir skulu berast á netfangið hilmar@vogar.is Nánari upplýsingar veitir Hilmar Egill Sveinbjörnsson skólastjóri. |