27. apríl 2015

Laust starf skólaritara

Auglýst er staða ritara við Stóru-Vogaskóla, um 100% starf er að ræða. Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. ágúst næstkomandi.

Starfið reynir á marga mismunandi hæfileika, en hæfni í mannlegum samskiptum, áhugi og ánægja af vinnu með börnum og ungmennum skipta miklu máli. Viðkomandi þarf að vera jákvæður og skipulagður.

Umsækjandi þarf að hafa góða tölvukunnáttu og gott vald á íslensku. Stúdentspróf og/eða víðtæk reynsla af skrifstofustörfum eða starfi í skóla æskileg. Um laun og kjör fer eftir samningum viðkomandi stéttarfélags og Launanefndar sveitarfélaga.

Umsóknarfrestur er til 5.maí 2015

Nánari upplýsingar veitir:

Svava Bogadóttir, skólastjóri í síma 440-6250.  Fyrirspurnir og umsóknir skal senda á:  svavaboga@vogar.is

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Grænfáninn
  • Mentor
  • Twinning School