17. nóvember 2015

Lestrarhátíð í Stóru-Vogaskóla

Á degi íslenskrar tungu, 16.nóvember, blés Foreldrarafélag og starfsmenn Stóru-Vogaskóla til lestrarhátíðar.

Tilgangurinn var fyrst og fremst sá að kynna nýja lestrarstefnu skólans sem var unnin af kennurum síðasta skólaár. Okkur fannst vel við hæfi að fá upplestur frá nokkrum nemendum skólans bæði ungum og þeim eldri. Nemendur úr 2.bekk, Emilía Rós og Heiðar Sær, lásu stuttan texta úr lestrarbókum sínum,  nemandi úr 4.bekk, Jenetta, las ljóð, nemendur úr 5.bekk, Ívan Andri og Kjartan, lásu stuttar þjóðsögur og 8.bekkingarnir, Guðbjörg og Sigurbjörg, lásu fræðilegan texta úr stærðfræðibókinni og náttúrufræðibókinni. Þá kom til okkar Sólveig Karlsdóttir frá Heimili og skóla og flutti fyrirlesturinn Saman náum við árangri. Á öllum góðum hátíðum er tónlistarflutningur og svo var líka á lestrarhátíðinni. Nemendur í 3. og 9.bekk sungu skólasönginn, 1.bekkingar sungu Stafrófslagið, með táknmáli og 10.bekkur söng Það er gott að lesa. Undirspil önnuðust Kaleb nemandi í 10.bekk og Þorvaldur Örn kennari. Að lokum fóru foreldrar í þá tíma sem börnin þeirra voru í og þar unnu þau verkefni saman tengd lestri. Sem dæmi má nefna að í sundtíma var kennarinn búinn að koma plöstuðum spjöldum fyrir á botninum og áttu nemendur að kafa eftir spjöldunum og lesa upphátt fyrir hina.

Dagskráin var metnaðarfull og skemmtileg. Nemendur komu að undirbúningi hátíðarinnar á margvíslegan hátt m.a. með auglýsingagerð. Nemendur í 8. bekk hönnuðu auglýsingu sem nemendur í 6.bekk báru út í öll hús í Vogunum. Þá léku nemendur í 7.bekk auglýsingu sem var birt á Facebooksíðum skólans, bekkja og bæjarsíðunni. Skólinn sendi auglýsingu til foreldra í gegnum Mentor og stórum auglýsingum var dreift um bæinn. Nemendur settu einnig bækling og bókamerki um þjóðarsáttmálann um læsi í umslag sl.fimmtudag, merktu það foreldrum sínum og afhentu þegar þau komu heim, auglýsing var sett á heimasíðu skólans og í gærkvöld fengu allir foreldrar sms – skilaboð, þar sem minnt var á lestrarhátíðina. Lagt var upp með að allir nemendur skólans kæmu á einhvern hátt að undirbúningi og framkvæmd hátíðarinnar. Það var því mikil eftirvænting hjá hópnum í morgun en árangur erfiðisins lét ekki á sér standa. Það mættu um 70 foreldrar og var það samróma álit allra að sérlega vel hefði til tekist.

Í haust undirrituðu menntamálaráðherra, sveitarstjórar landsins og fulltrúar frá Heimili og skóla Þjóðarsáttmála um læsi. Sá sáttmáli gengur í stuttu máli út á það að ráðuneytið, sveitarfélögin, skólarnir og foreldrar taki höndum saman um að efla læsi barna á Íslandi. Við munum ekki láta okkar eftir liggja og göngum jákvæð og full eftirvætningar til verks.

 

Svava Bogadóttir, skólastjóri Stóru-Vogaskóla

Sólveig Karlsdóttir frá Heimili og skóla hélt fyrirlesturinn Saman náum við árangri.

Halla Jóna Guðmundsdóttir og  Halldóra Magnúsdóttir kennarar ásamt Jenettu Líf í 4. bekk sem las nokkrar línur.

Foreldrar með börnum sínum inní stofu að skoða verkefnavinnu þeirra.

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Grænfáninn
  • Mentor
  • Twinning School