21. nóvember 2014

Margt spennandi að gerast í Stóru-Vogaskóla

Það er aldrei lognmolla í Stóru-Vogaskóla. Á milli þess sem nemendur sinna bóklegu- og verklegu námi undirbúa þeir einnig uppákomur eins og samverur þar sem þeir láta ljós sitt skína í látbragði, söng, upplestri, spurningakeppnum og leikjum. Afraksturinn birtist í færni til að koma fram og standa með sjálfum sér.

Föstudaginn 21. nóvember fengu nemendur í 2. bekk að láta ljós sitt skína á einni slíkri samveru.

Þau léku af fingrum fram alls kyns atriði eins og leikrit, dans, söng, píanóleik, flautuleik, áslátt, spurningakeppni og leiki.

Atriðin voru hvert öðru metnaðarfyllra og tók samveran hátt í 40 mínútur í flutningi og allan tímann var mikið um að vera.

Það verður koma fram að þessir 6 og 7 ára nemendur unnu sjálfstætt að undirbúningi samverunnar. Þeir röðuð sér saman í hópa, ákváðu og bjuggu til öll atriðin, skrifuðu leikrit, sömdu dans og æfðu flókin tónlistaratriði, leiki og spurningar. Þarna mátti líta framtíðarfjöllistafólk.

Fjölmennur hópur hugmyndaríkra einstaklinga.

Drífa Hjördís Thorstensen umsjónarkennari

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Grænfáninn
  • Mentor
  • Twinning School