Minna tuð-meiri tenging!
Fræðslufundur í streymi fyrir foreldra barna og unglinga með ADHD og aðra áhugasama. Þriðjudagur 10. febrúar kl. 20
Minna tuð - meiri tenging!
Að eiga barn eða ungling með ADHD getur verið krefjandi.
Á þessum fræðslufundi ræðum við hvernig ADHD birtist, hvaða áhrif það hefur á hegðun, samskipti og líðan og hvernig við getum skapað umhverfi sem talar í takt.
Við skoðum meðal annars: Hvernig ADHD kemur fram í daglegu lífi
Aðferðir til að styðja við tilfinningastjórnun og sjálfstraust
Hvernig draga má úr krefjandi hegðun og setja skýr mörk
Mikilvægi kerfis og sjónrænna áminninga, minna óþarfa tuð
Leiðir til að efla samskipti og traust milli heimilis og skóla
Það sem virkar fyrir börn og unglinga með ADHD virkar fyrir flest alla. Við hvetjum því öll sem vilja skilja og styðja til að horfa.
Fyrirlesari er Jóna Kristín Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri fræðslumála hjá ADHD-samtökunum og grunnskólakennari








