5. september 2017

NÝTT - Tónlistarnám í skólanum - Frítt

  NÝTT - tónlistarnám í skólanum - Frítt

 

SKÓLAKÓR fyrir nemendur í 3. -  7. bekk.

Kór fyrir stelpur og stráka sem hafa gaman af að syngja og hafa áhuga á að kynnast skemmtilegu kórstarfi, læra ný lög.

Kennt verður einu sinni í viku á mánudögum frá 13:40 - 14:00. Auk þess fá nemendur einn söngeinkatíma á mánuði.

Verkefni í vetur verða fjölbreytt: m.a. stefnt á að taka upp jólalag og gera myndband við lagið.

Markmiðin eru; að kenna nemendum að nota sína eigin rödd í kór, læra á styrkleika raddarinnar, einbeitingu og öndunarsöngtækni.

Áhugasamir geta skráð sig, fyrir föstudaginn 15.september, með því að senda tölvupóst til Alexöndru, tónmenntakennara og kórstjóra alexandrac@vogar.is

Með skráningu þurfa foreldrar að gefa upp þessar upplýsingar:

-nafn barns

-hvaða bekk/aldur

-netfang foreldra

 

                                                                                

 

„BÍLSKÚRSHLJÓMSVEIT“ fyrir nemendur í 5. - 8. bekk.

Kennt verður einu sinni í viku á fimmtudögum frá 13:40 - 14:20. Auk hóptíma þá verða einkatímar einu sinni í mánuði.

Verkefni á árinu verða fjölbreytt; m.a. stefnt á að taka þátt í leiksýningu á árhátíðinni og gera myndband við  lag að vori.

Markmið er: að kenna/leiðbeina nemendum að spila á  sitt hljóðfæri, kenna/leiðbeina í að spila í hljómsveit.

Áhugasamir geta skráð sig, fyrir föstudaginn 15.september, með því að senda tölvupóst til Alexöndru, tónmenntakennara og kórstjóra alexandrac@vogar.is

Með skráningu þurfa foreldrar að gefa upp þessa upplýsingar:  

-nafn barns

-hvaða bekk/aldur

-netfang foreldra

                                                                                                                                                                    

Alexandra Chernyshova - tónlistarmaður og tónmenntakennari hér í skólanum. Alexandra var valin í hóp 10 framúrskarandi ungra Íslendinga árið 2014 fyrir framlag sitt til menningar á Íslandi. Hún hefur lokið M.Mus frá Listaháskóla Íslands, M.Ed. frá Háskólanum í Kiev, meistaragráðu í óperusöng og söngkennaraprófi frá Odessa tónlistarakademíunni og Glier High Music College og sömuleiðis BA frá National Kiev Linguistic University. Alexandra stofnaði Óperu Skagafjarðar árið 2006, Söngskóla Alexöndru og stúlknakór Draumaradda Norðursins árið 2008. Alexandra hefur sungið víða um Ísland, Evrópu, New York og líka í Kína og Japan.

 

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Grænfáninn
  • Mentor
  • Twinning School