Öskudagur
Miðvikudaginn 18. febrúar er öskudagur sem er skertur nemendadagur. Allir nemendur mæta á hefðbundnum tíma og eru fram yfir mat.
Frístund hefst strax að loknum hádegismat kl. 11:40 og er í skólanum. Þeir foreldrar sem vilja að börn sín mæti á öskudagsskemmtun í Borunni, þurfa að sækja börn sín í Frístund í skólann (inngangur yngsta stigs) eða gera aðrar ráðstafanir.
Við hvetjum alla til að mæta í búning.
Dagskrá í félagsmiðstöðinni kl. 15-17: Diskó, hoppukastali, þrautabraut og andlitsmálning verður í íþróttahúsi á vegum nemendaráðs og Borunnar og er frítt inn.








