20. maí 2011

Síðasta samvera vetrarins í Stóru-Vogaskóla

Í dag fór fram í Tjarnarsal síðasta samvera skólaársins. Það kom í hlut 6. bekkjar og Daniellu umsjónarkennara þeirra að sjá um dagskrána. Tókst þeim það vel að vanda. Í þetta sinn var söngur á sal líka á dagskránni og stóð gítarsveit skólans fyrir henni undir stjórn Þorvaldar. Var sveitin skipuð Þorvaldi, Hannesi, Írisi auk Sigurði úr 6. bekk og Eyþóri úr 8. bekk. Nemendur allir tóku hressilega undir, sérstaklega þegar Evróvisjónlagið Aftur heim var leikið. Myndir frá samverunni má sjá í myndasafni skólans.

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Grænfáninn
  • Mentor
  • Twinning School