Símafriður í Stóru-Vogaskóla
Mánudaginn 9. nóvember verður símafriður innleiddur í Stóru-Vogaskóla. Símafriður kemur til vegna reglugerðar Mennta- og barnamálaráðuneytis um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskólum og frístundaheimilum.
Reglur um síma og snjalltæki hafa verið unnin í samráði við starfsfólk og nemendaráð skólans. Reglurnar hafa verið kynntar nemendum.
Við biðjum ykkur foreldra og forráðamenn að vinna þessi mál eins vel með skólanum og unnt er, með von um að vel megi til takast.
Kær kveðja
Skólastjórnendur Stóru-Vogaskóla









