8. september 2026

Sjónauki að gjöf

Sjónauki að gjöf

Stóru-Vogaskóli fékk sjónauka að gjöf. Sjónaukinn er af tegundinni Seestar S30 Pro Total Solar Eclipse Edition sem er viðhafnarútgáfa af vinsælum snjallsjónauka. Sjónaukinn mun nýtast vel bæði til að skoða himingeiminn; sól, tungl og reikistjörnur en líka aðra hluti í náttúrunni t.d. fugla og dýr. Með sjónaukanaum er hægt er að taka myndir og myndbönd, sem hentar mjög vel fyrir fjölbreytta og lifandi vísindafræðslu.

Þessi gjöf er að frumkvæði Reykjanes jarðvangs með veglegum styrk frá bæði Kadeco og atNorth gagnaverinu. Sævar Helgi Bragason hefur lagt sitt af mörkum í þessari gjöf, því honum er mikið í mun að opna þennan heim fyrir skólabörnum.

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Grænfáninn
  • UNESCO
  • Hnetulaus skóli
  • Mentor
  • Twinning School