18. maí 2016

Skólahreystislið út að borða á Gamla Pósthúsinu

Guðrún og Jörundur sem reka veitingastaðinn Gamla Pósthúsið hér í Vogum, hétu á nemendur í Stóru-Vogaskóla sem kepptu í skólahreysti fyrir úrslitakeppnina að ef þau kæmust á pall í úrslitunum mættu þau koma og borða hjá þeim hvað sem er af matseðli í boði hússins, en eins og allir vita þá endaði Stóru-Vogaskóli í þriðja sæti í keppninni.

Föstudaginn 6.maí mætti hópurinn ásamt íþróttakennara, 8.samtals og fengu konunglegar móttökur og dýrindis mat, lambafille með frönskum og tilheyrandi og flottum eftirrétti, brownies með rjóma og ís, síðan var þakkað fyrir sig og fóru allir glaðir og saddir heim.

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Grænfáninn
  • Mentor
  • Twinning School