6. júní 2025

Skólaslit og útskrift

Skólaslit og útskrift

Skólaslit Stóru-Vogaskóla fóru fram við hátíðlega athöfn á sal skólans 4. júní s.l. Skólaslitin voru tvískipt þ.e. 1.-5. bekkur og 6.-10. bekkur.

Sem áður einkenndist skólaárið af fjölbreyttum verkefnum og áskorunum. Nemendum við skólann heldur áfram að fjölga og eru í skólalok um 220. Mikil uppbyggingu er í samfélaginu og er ljóst að nemendum mun fjölga áfram næstu árin. Með fjölgun nemenda er gert ráð fyrir fjölgun bekkja og munu lausar kennslustofur leysa þann húsnæðisvanda tímabundið. Áætlað er að lausum kennslustofum verði komið fyrir í sumar utan skólalóðar. Auk þessa verða ýmsum viðhaldsverkefnum og viðgerðum sinnt í sumar eins og gefur að skilja.

Í byrjun september fór 7. bekkur í skólabúðirnar á Reykjum í Hrútafirði og dvaldi þar tæpa viku. Stóru og litlu upplestrarkeppninni var ýtt úr vör á degi íslenskra tungu, 16. nóv. eins og venja hefur verið í mörg ár. Árshátíð nemenda og árshátíðarböll, yngri og eldri nemenda var á sínum stað og tókst mjög vel. Vorhátíð var haldin á uppstigningardag í maí. Á vorhátíð er sýning á hluta af verkum nemenda sem unnin hafa verið yfir veturinn. Á vorhátíðardegi sér 6. bekkur og foreldrar um vinsæla kaffisamsætið í Tjarnarsal sem er liður í fjáröflun bekkjarins fyrir Reykjaferð sem farin er haustið eftir. Í lok maí tók Stóru-Vogaskóli þátt í Skólahreysti eftir miklar æfingar og undirbúning í allan vetur. Íþróttakappleikir 10. bekkinga við kennara var háður í maí. Skólahlaupið var hlaupið í lok maí og var hlaupið í tveimur flokkum, keppnis- og skemmtiskokk. 10. bekkur fór í sína árlegu vorferð á Bakkaflöt í Skagafirði.

Stóru-Vogaskóli er viðurkenndur Erasmus-skóli og einn sá fremsti og virkasti á því sviði á Íslandi, og þar höfum við verið í nokkur ár. Erasmus er hluti af menntaáætlun Evrópusambandsins og er ætlað að stuðla að auknu samstarfi meðal skóla í Evrópu. Sem stendur er skólinn þátttakandi í 6 ára verkefni með skólum í Frakklandi og Ítalíu. Hluti af verkefninu er að taka á móti nemendum frá þessum löndum og senda hluta nemenda á unglingastigi til Frakklands og Ítalíu. Í mars fór hópur nemenda til Frakklands og annar til Ítalíu. Í maí fengum við svo nemendur frá Frakklandi og Ítalíu í heimsókn sem dvöldu hjá fjölskyldum.

Stóru-Vogaskóli fékk vottun sem UNESCO-skóli nú í vor og tengist þar með Reykjanes Geopark sem er UNESCO jarðvangur. Vottunin fellst m.a. í vinnu með Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, frið, mannréttindi og margt fleira.

Skólinn er einnig Grænfána skóli og hefur verið í mörg ár. Fyrirhugað er að tengja verkefni Erasmus, Grænfána og UNESCO saman í eina heildarnálgun og vinna með þau heildstætt.

Samstarf við Heilsuleikskólann Suðurvelli hefur verið heilmikið í gegnum árin og verkefnin fjölbreytt. Gagnkvæmar heimsóknir 1. bekkinga og elstu nemenda á leikskóla hafa staðið yfir allt skólaárið. Valgrein á unglingastigi, Spilavinir hafa einnig farið á leikskóla að spila og einnig í Álfagerði, heimili eldri borgara.Skemmtilegt verkefni var unnið í vetur sem rithöfundurinn Þórunn Rakel Gylfadóttir hafði veg og vanda með ásamt starfsfólki á bókasafninu, kennurum, nemendum o.fl. Verkefnið hét Íslenska í orði og á borði. Samdar voru sögur á íslensku á grunni skapandi vinnu með börnum sem tala litla sem enga íslensku, fleiri bættust við. Verkefnið var unnið í verkmenntakennslu og íslensku.

Auk þessarrar upptalningur stærstu viðburða er fjöldi annarra viðburða hjá öllum bekkjum. Það er svo sannarlega mikið líf og gaman í skólanum sem sjá má m.a. undir flipanum Fréttir á heimasíðu skólans.

Lestrarvinum skólans eru færðar þakkir fyrir óeigingjarnt sjálfboðastarf í þágu nemenda. Frá því í haust hafa lesrarvinir, sem eru eldriborgarar í samfélaginu, komið í skólann einu sinni í viku og aðstoðað við lestrarkennslu, maður á mann, hlustað og spjallað.

Við útskrift 10. bekkjar ávarpaði Ingibjörg Ragnarsdóttir nemendur og fór yfir farinn veg.

Við þökkum nemendum og foreldrum kærlega fyrir samstarfið í vetur. Óskum ykkur ánægjulegs sumars og hlökkum til samstarfsins á komandi hausti.

Smellið hér til að sjá myndir frá athöfninni.

Hilmar Egill Sveinbjörnsson

Skólastjóri Stóru-Vogaskóla

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Grænfáninn
  • Mentor
  • Twinning School