14. maí 2026

Staða aðstoðarskólastjóra

Staða aðstoðarskólastjóra

Auglýst er staða aðstoðarskólastjóra við Stóru-Vogaskóla. Starfið felur í sér að styðja við skólastjóra í daglegum rekstri skólans og samskipti við nemendur og foreldra.

Í Stóru-Vogaskóla eru um 220 nemendur í 1.-10. bekk í ört stækkandi sveitarfélagi. Lögð er áhersla á fjölbreytt, metnaðarfullt og skapandi skólastarf. Einkunnarorð skólans eru virðing, vinátta og velgengni sem endurspeglast í daglegu starfi. Stóru-Vogaskóli er Grænfána, UNESCO og Erasmus+ skóli.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoð við daglegan rekstur skólans
  • Stjórnun og stuðningur við kennara og annað starfsfólk
  • Samskipti við nemendur og foreldra
  • Umsjón með alþjóðaverkefnum
  • Þátttaka í stefnumótun og þróun skólastarfs
  • Önnur verkefni í samráði við stjórnendateymi

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Reynsla og/eða menntun í skólastjórnun
  • Reynsla af styrkumsóknum og alþjóðastarfi s.s. Erasmus+
  • Þekking á markmiðum og vottun UNESCO skóla
  • Góð tölvukunnátta, mjög góð þekking á Mentor, upplýsingatækni og notkun rafrænna miðla í kennslu og starfi
  • Reynsla og þekking af stundatöflugerð
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð enskukunnátta er skilyrði og önnur málakunnátta kostur
  • Þekking og reynsla af kennslu íslensku sem annars tungumáls
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, lausnamiðun og hæfni til að vinna í teymi
  • Frumkvæði, sjálfstæði, skipulögð vinnubrögð og faglegur metnaður

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Skólastjórafélags Íslands.

Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð sbr. 11. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008.

Umsóknum skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil, afrit af leyfisbréfi og kynningarbréf.

Umsóknarfrestur er til og með 25. maí. Umsóknir skulu berast á netfangið hilmar@vogar.is

Nánari upplýsingar veitir Hilmar Egill Sveinbjörnsson skólastjóri.

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Grænfáninn
  • UNESCO
  • Hnetulaus skóli
  • Mentor
  • Twinning School