4. mars 2011

Stóra upplestrarkeppnin 2011

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Grindavík í gær. Tólf nemendur frá Stóru-Vogaskóla, Gerðaskóla og Grindavíkurskóla kepptu til úrslita  um þrjú verðlaunasæti. Nemendur hófu undirbúning fyrir keppnina í nóvember, á degi íslenskrar tungu og hafa æft af kappi síðan. Það skilaði góðum árangri hjá öllum lesendum sem stóðu sig með prýði. Þeir sem tóku þátt í Lokahátíðinni fyrir hönd okkar voru Edda Björk Birgisdóttir, Elsa Kristín Kay Frandsen, Hanna Stefanía Björnsdóttir og Sara Maya Önnudóttir. Nemendur Stóru-Vogskóla stóðu sig frábærlega og fóru heim með tvenn verðlaun., Elsa Kristín Kay Frandsen hlaut fyrsta sætið og Sara Maya Önnudóttir hlaut þriðja sætið. Annað sætið hlaut Una Margrét Einarsdóttir frá Gerðaskóla í Garði. Við óskum öllum nemendum sem tóku þátt í lokahátíðinni og undankeppni skólans til hamingju með frammistöðuna.

Þátttaka Stóru-Vogaskóla er í Stóru upplestrarkeppninni er árlegur viðburður en slíkar keppnir eru haldnar á öllu landinu. Undirbúningur í Stóru-Vogaskóla hvað snertir þjálfun nemandanna hefur að miklu leyti verið í höndum Hilmars Egils Sveinbjörnssonar.Undanfarin ár hefur Stóru-Vogaskóli verði í samstarfi við Gerðaskóla í Garði og Grunnskólann í Grindavík um framkvæmd lokahátíðarinnar. Þar hefur skapast sú hefð að hver skóli kemur með tónlistaratriði. Hrafnkell Karlsson nemandi í 7. bekk spilaði á píanó. Einnig hafa nemendur séð um að baka kökur fyrir hátíðina og sáu nemendur úr heimilisfræði um það þetta árið. Við þökkum þeim kærlega fyrir þeirra þátt sem skipti miklu máli til að gera hátíðina sem glæsilegasta. Sjá má myndir frá keppninni á myndavef skólans.

Sigurvegarar með verðlaun sín og blóm. Frá vinstri: Una Margrét Einarsdóttir, Gerðaskóla, Elsa Lilja Kay Fradsen, Stóru-Vogaskóla, og Sara Maya Önnudóttir, Stóru-Vogaskóla.

Hrafnkell Karlsson leikur á píanó.

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Grænfáninn
  • Mentor
  • Twinning School