Stóru-Vogaskóli kominn með Grænfána
Eftir tveggja ára undirbúning er Stóru-Vogaskóli loksins farinn að flagga Grænfána :)
Fulltrúi frá Landvernd, Gerður Magnúsdóttir, kom sl. þriðjudag og gerði úttekt á skólanum. Hún fór í heimsókn í nokkrar stofur og talaði við nemendur og starfsfólk auk þess að lesa um það sem gert hefur verið. Niðurstaðan varð sú að við skyldum fá grænfána og kom Gerður aftur í dag, föstud. 20. sept., og afhenti fánann í Tjarnarsal að viðstöddum öllum nemendum og starfsfólki. Gerður fór í heimsókn í nokkrar stofur, talaði við nemendur og það var virkilega gaman að heyra hvað allir voru með á nótunum.
Umhverfisnefnd skólans, sem í eru nemendur og starfsfólk, fylgist með umhverfismálum, kemur með tillögur til úrbóta og útbýr stefnu skólans í umhverfismálum, sem sjá má á heimasíðu skólans.
Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða um lönd sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Nú taka þátt skólar með u.þ.b. 10 milljón nemendum í 60 löndum, þar af um 230 á Íslandi.
Verkefnin eru bæði til kennslu í bekk og til að bæta daglega umgengni og rekstur skóla. Þau auka þekkingu nemenda og skólafólks og styrkja grunn að því að tekin sér ábyrg afstaða og innleiddar raunhæfar aðgerðir í umhverfismálum skóla. Jafnframt sýnir reynslan í Evrópu að skólar sem taka þátt í verkefninu geta sparað talsver í rekstri.
Grænfáni mun væntanlega blakta við hún við Stóru-Vogaskóla næstu 2 árin, en þá verður gerð úttekt á ný og metið hvort skólinn skuli halda fánanum, en til þess þarf að sýna úthald og framfarir.