Þemadagur Alþjóðadagur móðurmálsins
Alþjóðadagur móðurmálsins er haldinn hátíðlegur á hverju ári þann 21. febrúar að tilstuðlan Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO. Til að vekja athygli á fjölda þeirra tungumála sem töluð eru í Stóru-Vogaskóla unnu nemendur ýmis verkefni tengd deginum. Í skólanum eru töluð 12 tungumál. Afrakstur þemadagsins verður til sýnis á vorhátíð skólans í maí.








