Umhverfisfréttafólk
6. bekkur Stóru-Vogaskóla tók þátt í verkefninu Umhverfisfréttafólk sem haldið er árlega á vegum Landverndar og Grænfánans.
Öll verkefni bekkjarins fengu hrós fyrir að vera afar vel unnin og komust tvö þeirra í úrslit.
Verkefnið Umhverfið okkar, eftir þær Freyju Rós og Iðunni Frigg, fjallar um mikilvægi þess að vernda náttúruna og huga vel að nærumhverfinu. Þá komst einnig verkefnið Flokkun á skemmtilegan hátt, eftir Angeliku Maríu, í úrslit en það sýnir á skapandi og fræðandi hátt hvernig hægt er að flokka sorp rétt.
Verkefnið Umhverfisfréttafólk er unnið með það að markmiði að hvetja nemendur til að kynna sér umhverfismál og miðla þekkingu sinni á fjölbreyttan og skapandi hátt. Þátttakendur vinna ýmis skapandi verkefni sem fjalla meðal annars um náttúruvernd, endurvinnslu og sjálfbærni.








