
Viðurkenning UNESCO

Þann 13. maí 2025 var haldin vinnustofa um UNESCO-skóla í samstarfi við Suðurnesjavettvanginn og Reykjanes Jarðvang. Markmið vinnustofunnar var að efla samvinnu, þekkingu og sýn á UNESCO-skólastarf, með það að leiðarljósi að undirbúa skóla á Suðurnesjum fyrir umsóknarferli og þátttöku í skólanetinu. Vinnustofan var haldin í tengslum við metnaðarfullt verkefni þar sem Suðurnesjavettvangur ásamt Reykjanes Jarðvangi (UNESCO Global Geopark) vinna að því að styðja leik-, grunn- og framhaldsskóla á svæðinu í átt að því að verða formlegir aðilar að UNESCO-skólanetinu. Síðastliðið haust skrifuðu fjöldi skóla á svæðinu á öllum skólastigum undir viljayfirlýsingu að sækja um þátttöku í verkefninu á næstu tveimur árum. Í opnunarerindi sínu lagði Vala, framkvæmdastjóri áherslu á mikilvægi þessarar þróunar og þann kraft sem býr í skólasamfélögum Suðurnesja. „Þetta samstarf sameinar fólk, samfélög og stofnanir í því markmiði að efla menntun til hnattrænnar borgaravitundar og sjálfbærrar framtíðar,“ sagði hún og hvatti þátttakendur til að nýta vinnustofuna til að læra hvert af öðru, byggja tengsl og finna innblástur til frekari verkefna. Dagskráin var fjölbreytt og hagnýt fyrir skólana en alls tóku 40 fulltrúar frá 17 skólum þátt í vinnustofunni. Fjallað var um lykilhugtök UNESCO-skóla, þar á meðal mannréttindi, sjálfbærni, inngildingu, borgaravitund og hnattræna ábyrgð. Þátttakendur tóku meðal annars þátt í hópavinnu og umræðum um hvernig hugtökin birtast í þeirra skólastarfi. Einnig deildu fulltrúar frá Stóru-Vogaskóla, Fjölbrautarskóla Suðurneska og Stapaskóla reynslu sinni af verkefnum tengdum UNESCO. Þá var Stóru-Vogaskóla veitt formleg viðurkenning um aðild að skólaneti UNESCO, en skólinn er sá fyrsti á svæðinu til þess að fá inngöngu í skólanetið. Í dag eru því um 23 UNESCO-skólar á Íslandi en alls eru um 10.000 skólar á heimsvísu. Í lok vinnustofunnar ríkti mikil bjartsýni og samhugur meðal þátttakenda. Þau skref sem nú eru stigin á Suðurnesjum fela í sér raunverulega framtíðarsýn – að skapa skólasamfélög sem byggja á virðingu, fjölbreytileika og alþjóðlegri samábyrgð. |