23. maí 2017

Vordagar nemenda

 Vordagar nemenda

 

Dagskrá:

 

30. maí:   Dagskrá frá kl.8:00, samkvæmt stundaskrá

1.-4. bekkur: Mæting kl. 8:00

Nemendur vinna að landgræðsluverkefni sínu og dreifa áburði og sá grasfræi. Einnig

verður farið í leiki í móanum. Nemendur eiga að vera klæddir eftir veðri og hafa

vettlinga fyrir sáninguna. Gott er að þeir taki með sér litla fötu undir fræin.

Hádegismatur verður í skólanum að sáningu lokinni. 

 

5.-7.bekkur: Dagskrá frá kl.8:00, samkvæmt stundaskrá

Nemendur vinna að landgræðsluverkefni sínu  og gróðursetja tré við Háabjalla. Gott

að mæta á hjóli að sjálfsögðu með hjálminn, ef nemendur mæta hjálmlausir þurfa þeir að ganga. Hádegismatur verður í skólanum að lokinni gróðursetningu.

 

8.-10.bekkur:  Dagskrá frá kl.8:00, samkvæmt stundaskrá

                        8.-9.bekkur - Farið til Reykjavíkur í Lasertak og sund.

Nemendur fá pizzu í ferðinni og borða því ekki hádegismat í skólanum. Komið heim      aftur seinnipartinn.

 

Fræðsla fyrir 10.bekk. Hádegismatur verður í skólanum.

 

31. maí:   Skertur dagur frá 9:00-12:00

1.-4. bekkur: Mæting kl. 9:00. Farið í ýmsa fjölbreytta leiki á skólalóðinni. Einnig farið í fjöruna.

Hafa með sér fötur, skóflur og fleira til að nota við kastalagerð í fjörunni. 

Skólahlaupið hefst kl. 11:00

Grilla í Aragerði eftir hlaupið og að því loknu fara nemendur heim.

 

5.-7.bekkur:  Mæting kl. 9:00   Farið verður  í ratleik í Aragerði.

Skólahlaupið hefst kl. 11:00

Grilla í Aragerði eftir hlaupið og að því loknu fara nemendur heim.

 

8.-10.bekkur:  Skólympiuleikarnir. - Fjölbreytt íþróttadagskrá í boði.

Skólahlaupið hefst kl. 11:00

Grilla í Aragerði eftir hlaupið og að því loknu fara nemendur heim.

           

Fimmtudagur 1.júní:  Skipulagsdagur hjá starfsfólki, frí hjá nemendum.

 

Föstudagur 2.júní:                Skólaslit í Tjarnarsal

1.- 7.bekkur    kl. 09:00

                                               8.-10.bekkur   kl. 10:30         

                                                                                              Bestu kveðjur,

                                                                                               Skólastjórnendur.

 

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Grænfáninn
  • Mentor
  • Twinning School