Vorsýning skólans
Vorsýning skólans fór fram með myndarbrag á uppstigningardag þann 14. maí. Verk nemenda voru sýnd í kennslustofum og voru einnig ýmsar uppákomur tengdar deginum. Hið vinsæla kaffihús og tombóla á vegum 6. bekkjar var á sínum stað. En ágóðann nota þau í Reykjaferð næsta skólaár. Nemendur og gestir gátu siglt á Vogatjörn á kajökum. Foreldrafélagið bauð uppá blöðrur og svo mætti áfram telja.
Myndirnar tala sínu máli.








