Rýmingaráætlun Stóru-Vogaskóla
Í Stóru-Vogaskóla er viðurkennt brunaviðvörunarkerfi. Í hverri stofu skólans, uppá vegg, er lýsing á fyrstu viðbrögðum/flóttaleiðum. Flóttaleiðir eru ein eða fleiri.
Ef brunaviðvörunarkerfið fer í gang skal unnið eftir eftirfarandi:
- Kennari undirbýr rýmingu þegar brunaviðvörunarkerfi fer í gang og fer eftir því ferli sem hér er listað. Skólastjóri eða staðgengill/húsvörður slekkur á brunabjöllu, kannar orsök og hvort um hættuástand er að ræða. Ef eldur er laus fer brunabjallan strax aftur í gang og þá er skólinn rýmdur. Ef ekki er um hættuástand að ræða koma skilaboð um það til starfsmanna sem hringja í Securitas og láta vita. Endurræsa svo brunakerfið.
- Kennari athugar hvort leið sé greið úr kennslustofu. Nemendur fara í stafrófsröð fyrir framan hurð í stofu.
- Ef reykur er á göngum hússins þarf að bíða eftir aðstoð slökkviliðs ef ekki er komist út um aðra flóttaleið. Bíða skal við glugga, björgunarop og koma fyrir veifu svo slökkvilið sjái að einhver er inni. Annars velur kennari þá leið sem greiðust er. Kennari er alltaf síðastur út og á að loka skólastofunni á eftir sér. Börnin taka einungis með sér skófatnað og yfirhafnir ef tími vinnst til.
- Skólastjóri/staðgengill eða húsvörður hefur samband við 112, tilkynnir um eldinn og gefur skýringar á brunaboðinu eins og hægt er, í hverju er kviknað og hvar. Ritari tekur með sér skráningarbók fjarvista ásamt nafnalistum nemenda og starfsfólks. Ritari dreifir möppum á svæði hvers bekkjar. Starfsfólk rýmir skólann og fer á söfnunarsvæðið sem er gervigrasvöllurinn við skólann og þar býður þeirra mappa með nafnalistum, blýanti, rauðu og grænu spjaldi.
- Hver kennari er ábyrgur fyrir þeim hópi sem hann er að kenna hverju sinni og kemur honum út á söfnunarsvæðið. Ef hættuástand skapast utan kennslustundar skulu kennarar og starfsfólk hjálpast að við rýmingu og koma nemendum á söfnunarsvæðið. Hver bekkur hefur þar sitt svæði og skulu nemendur raða sér þar upp í röð. Umsjónarkennari eða sá kennari sem er ábyrgur fyrir bekknum fer yfir nafnalistann og aðgætir hvort allir nemendur hafi komist út. Ef einhvern vantar skal kennarinn rétta upp rautt spjald. Ef engan vantar er rétt upp grænt spjald. Sérgreinakennari ber ábyrgð á sínum hópi og fylgir honum út á réttan stað. Hópar fara á svæði merkt þeirra árgangi og raða sér þar undir stjórn kennarans.
- Starfsmenn sem ekki eru með hópa raða sér á svæði við hliðina á fótboltavellinum nær sjónum deildastjóri fer yfir nafnalista starfsfólks. Hóparnir raða sér á svæði þannig að 10. bekkur er næst sjónum og svo koll af kolli.
- Skólastjóri kemur upplýsingum til slökkviliðs.
- Eftir manntal er farið með nemendur í íþróttahúsið. Beðið skal eftir að varðstjóri gefi leyfi til skólastjórnenda um hvort hægt sé að fara inn í bygginguna aftur.
Viðbragðsáætlun
Eftirfarandi viðbragðsáætlun er að finna í öllum stofum skólans:
Viðbrögð við eldsvoða eða hættuástandi:
Ef um hættuástand er að ræða ber að undirbúa rýmingu skólans samstundis.
Þegar brunaviðvörunarkerfi fer í gang bíða nemendur rólegir frekari skilaboða.
- Ef ekki er um hættuástand að ræða þá eftirfarandi:
- Koma skilaboðum um það í kennslustofur.
- Almenn svæði (eru m.a. matsalur og gangar). Stjórnendur láti vita að allt sé í lagi.
- Ef um hættuástand er að ræða fer brunabjallan aftur í gang eða bjallan er í gangi lengur en eðlilegt getur talist er skólinn tafarlaust rýmdur.
- Kennari athugar hvort leið sé greið úr kennslustofu.
- Kennari er alltaf síðastur út og á að loka skólastofunni á eftir sér. Börnin taka einungis með sér skófatnað og yfirhafnir ef tími vinnst til.
- Almenn svæði. Allir fara stystu leið út, starfsfólk rýmir svæðið.
- Nemendur ganga rólega út á söfnunarsvæðið sem er gervigrasvöllurinn. Þegar komið er á söfnunarsvæði fer hver bekkur á sitt afmarkaða svæði og raðar sér í stafrófsröð. 1.b. lengst til vinstri en 10.b. lengst til hægri, séð frá skóla. Starfsmenn aðrir en umsjónarkennarar eða ábyrgðarmenn bekkja, raða sér upp á sitt svæði. Ábyrgðarmaður er sá sem stjórnendur útnefna sem ábyrgðarmann á söfnunarsvæði sé umsjónarkennari ekki til staðar. Sé umsjónarkennari á svæðinu fer hann fyrir framan sinn bekk um leið og annar hefur tekið við þeim bekk sem hann kom með út.
- Kennarar fara yfir nafnalista og aðgæta hvort allir nemendur hafi komist út. Ritari kemur með nafnalista nemenda, starfsmanna og forfallalista á söfnunarsvæðið. Deildastjóri fer yfir nafnalista starfsfólks. Ef einhvern vantar skal tilkynna það yfirmanni söfnunarsvæðis.
- Ef hættuástand skapast þegar ekki er hefðbundin kennsla utan kennslustundar skulu nemendur og starfsmenn yfirgefa skólann samstundis og fara á söfnunarsvæðið. Þar fara í gang sömu ferlar og getið er hér að framan.
- Þegar komið er aftur í skólann skal passa upp á að nafnalistar og grænt/rautt spjald sé sett aftur í kassann.
- Öryggisregla: nemendur sem eru veikir eða fara af einhverjum orsökum ekki út í frímínútur eða annað mega EKKI vera einir inni í bekkjarstofum heldur eiga að bíða í sófa við skrifstofu.
Láta íþróttakennara vita uppí íþróttahús.
- Starfsfólk
- Matseðill
-
Stefnur og áætlanir
- Áfallaáætlun
- Eineltisáætlun
- Forvarnaráætlun Stóru-Vogaskóla
- Heimanámsstefna
- Lestrarstefna Stóru-Vogaskóla
- Umhverfisstefna
- Starfsáætlun
- Viðbragðsáætlun vegna ófullnægjandi skólaskóknar
- Viðmiðunarreglur
- Viðbragðsáætlun vegna jarðskjálfta
- Viðbragðsáætlun vegna hættuástands - Almannavarnir
- Rýmingaráætlun Stóru-Vogaskóla
- Bókasafnið
- Skólasöngurinn
- 150 ára saga








