Fréttir

Samstarf Heilsuleikskólans Suðurvalla og Stóru-Vogaskóla  2009-2010
9. júní 2010
Samstarf Heilsuleikskólans Suðurvalla og Stóru-Vogaskóla 2009-2010

Samstarfið byggist á því að brúa bilið milli leikskólans og grunnskólans. Markmiðið með því er að styrkja börnin í að takast á við þær breytingar sem verða þegar grunnskólaganga hefst. Á síðastliðnum árum hefur mikil samvinna verið milli Heilsuleikskólans Suðurvalla og Stóru-Vogaskóla og búið er að móta ramma sem samstarfið byggist á.  Hér má sjá a...

Lesa meira
Yngstu börnin græða upp Stapann
8. júní 2010
Yngstu börnin græða upp Stapann

Á vordögum í Stóru-Vogaskóla var 600 kg af tilbúnum áburði dreift á hálfgróið land upp af Reiðskarði á Vogastapa. Þar er strjáll gróður með grjóti og sand- og moldarflögum en töluvert af grasi sem er svo smávaxið að það sést varla en mun vaxa og þéttast þegar það fær áburð. Lúpínan er óðum að græða upp og leggja undir sig suðurhlið Vogastapa en ætl...

Lesa meira
Kiwanishreyfingin gefur reiðhjólahjálma
7. júní 2010
Kiwanishreyfingin gefur reiðhjólahjálma

Nýverið kom fulltrúi frá Kiwanishreyfingunni í sína árvisssu heimsókn í 1. bekk og afhenti börnunum reiðhjólahjálma að gjöf. Börnin tóku glöð og ánægð við þessari góðu gjöf, þökkuðu fyrir sig og hétu því að nota hjálmana alltaf þegar þau væru að hjóla,  leika sér á línuskautum eða á hjólabretti. Á myndunum má sjá Erling Hannesson ræða við nemendur ...

Lesa meira
Comeniusarfundur í Konya í Tyrklandi
2. júní 2010
Comeniusarfundur í Konya í Tyrklandi

S.l. mánudag lagði hópur kennara úr Stóru-Vogaskóla af stað áleiðis til borgarinar Konya í Tyrklandi. Tilgangurinn með förinni var að hitta samstarfsfólkið í núverandi comeniusarverkefni (sjá heimasíðu ). Þeir sem eru í hópnum eru Marc Portal, Kristín Hulda Halldórsdóttir, Vilborg Diljá Jónsdóttuir, Íris Andrésdóttir og Hannes Birgir Hjálmarsson. Í...

Lesa meira
Skólaslit Stóru-Vogaskóla föstudaginn 4. júní
2. júní 2010
Skólaslit Stóru-Vogaskóla föstudaginn 4. júní

Skólaslit við Stóru-Vogaskóla eru föstudaginn 4. júní næstkomandi og verða sem hér segir:  - fyrir 1.-7. bekk kl. 16  - fyrir 8.-10. bekk kl. 17 Foreldrar/ forráðamenn eru hvattir til að koma með börnum sínum á skólaslitin.   Skólastjórnendur...

Lesa meira
Vorhátíð 2. júní - dagskrá
28. maí 2010
Vorhátíð 2. júní - dagskrá

Eins og áður hefur komið frá verður Vorhátíð Stóru-Vogaskóla haldin miðvikudaginn 2. júní. Það er foreldrafélagið sem stendur fyrir hátíðinni og hér má sjá dagskrána sem verður að venju fjölbreytt....

Lesa meira
Spinnum saman - höfum gaman - verkefni lýkur
25. maí 2010
Spinnum saman - höfum gaman - verkefni lýkur

Samvinna Stóru-Vogaskóla og Myllubakkaskóla í Keflavík.  Textíl- og smíðakennarar úr Myllubakkaskóla í Keflavík og Stóru-Vogaskóla í Vogum settu á stofn sameiginlegt verkefni sem hefur hlaut heitið Spinnum saman - höfum gaman. Verkefnið er styrkt af Menningaráði Suðurnesja með kr. 300 þús. Verkefnið var hugsað sem samstarf milli Stóru-Vogaskóla og ...

Lesa meira
Duglegir nemendur í námsveri
19. maí 2010
Duglegir nemendur í námsveri

Nemendur í námsveri lögðu könnun fyrir nemendur í 5. - 10. bekk og verða niðurstöður birtar á vordögum eða við skólaslit. Sýndu nemendurnir mikinn dugnað og vandvirkni við framkvæmd könnunarinnar og eiga þakkir skildar fyrir það....

Lesa meira
Leikfélag Keflavíkur sýndi í Tjarnarsal
18. maí 2010
Leikfélag Keflavíkur sýndi í Tjarnarsal

Í dag flutti Leikfélag Keflavíkur leikrit í Tjarnarsal fyrir yngstu nemendur bæjarins. Leikskólinn var mættur sem og nemendur 1. - 4. bekkjar skólans. Leikritið hét Mér er sama hvað öðrum finnst um mig og fjallaði það um að ekki væru allir steyptir í sama mótið og því væri alls engin ástæða til að stríða einhverjum útlitsins vegna. Boðskapurinn vir...

Lesa meira
Nemendur skólans ganga á Kistufell
17. maí 2010
Nemendur skólans ganga á Kistufell

Í blíðu veðri, þó örlítið hvössu gekk vaskur hópur 10. bekkinga úr Stóru-Vogaskóla á Kistufell í Esju (841m). Ferðin sem tók rúma 6 tíma gekk vel. Gengið var upp í Gunnlaugsskarð og þar farið upp á Kistufell. Síðan var gengið út á brún Kistufells og útsýnið dámsamað eins og sést á meðfylgjandi myndum. Gangan einkenndist af bröttum skriðum, snjósköf...

Lesa meira
  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Grænfáninn
  • UNESCO
  • Hnetulaus skóli
  • Mentor
  • Twinning School